Lögð fram umsókn
Mílu ehf.
, mótt. 11.maí 2017, um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara í landi Stardals á Kjalarnesi og Skálafelli. sem felst í að leggja ljósleiðara frá Gljúfrasteini í Mosfellsdal eftir þjóðvegi að Leirvogsvatni, í gegnum land Stardals, eftir Skálafellsvegi og upp í tækjahús sem staðsett er á Skálafelli, samkvæmt skýringarmynd Mílu, dags. 25. apríl 2017. Einnig er lögð fram lýsing á lögn ljósleiðarastrengs Neyðarlínu og Mílu, dags. 30. apríl 2017, leyfi Vegagerðarinnar, dags. 9. maí 2017 og samkomulag um lagnaleið vegna lagningu ljósleiðara, dags. 9. maí 2017.