Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. maí 2017 var lögð fram umsókn
SORPU bs.
, mótt. 30. mars 2017, um framkvæmdaleyfi vegna sprenginga og greftri á 70x280 metra svæði SORPU í Álsnesi, samkvæmt uppdr. Stuðuls verkfræði- og jarðverkfræðiþjónustu ehf. og
SORPU bs.
, dags. í júní 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júní 2017.