Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Atla Jóhanns Guðbjörnssonar
dags. 10. september 2019 ásamt bréfi dags. 10. september 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að bæta við nýjum byggingarreit (reitur F) á landið fyrir starfsmannahús og auka nýtingarhlutfall, samkvæmt uppdr.
TAG teiknistofu ehf.
dags. 10. september 2019. Tillagan var auglýst frá 20. janúar 2020 til og með 2. mars 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Veitur dags. 2. mars 2020.