Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Miðflokksins:
Þær athuganir sem lagðar hafa verið fram í þessu máli sýna að breytingar sem gerðar voru á síðasta ári skorti vandaðan undirbúning. Meðal annars var ekki horft til samspils við beygjuafreinar og nálæg gatnamót og horft framhjá ábendingum um miklar umferðartafir, sem hafa raungerst með miklu tjóni fyrir þá sem ferðast um svæðið með bílum. Í framhaldi af athugunum og umræðum hefur komið fram betri tillaga að lausn á þeim umferðarvanda sem við er að etja, heldur en felst í tillögu Miðflokksins frá því í júlí s.l. Er eldri tillaga Miðflokksins því dregin til baka. Ný tillaga sem Miðflokkurinn á aðild að með meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks gerir meðal annars ráð fyrir endurgerð hægribeygjuframhjáhlaups frá Bæjarhálsi til norðurs inn á Höfðabakka, sem fjarlægt var við síðustu breytingar á gatnamótunum. Einnig lengingu vinstribeygjuakreinar frá Bæjarhálsi, lengingu akreinar sunnan gatnamótanna og breyttri akreinaskipan frá Streng. Þá er einnig gert ráð fyrir að kannaður verði fýsileiki undirganga undir Höfðabakka, rétt norðan við gatnamótin, til að tengja göngu - og hjólastíga beggja vegna götunnar, en þarna er mikilvæg gatnamót í stígakerfi borgarinnar til framtíðar. Miðflokkurinn leggur mikla áherslu á mikilvægi þessarar framkvæmdar fyrir umferð í austurbyggðum borgarinnar og telur brýnt að þær komist til framkvæmda ekki síðar en næsta vor.