Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 335
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Isavia, dags. 6. júlí 2023 ásamt skýrslu Svarma dags, 15. ágúst 2023, einnig lögð fram drög að aðgerðaráætlun um trjáfellingar í Öskjuhlíð í þágu flugöryggis, dags. mars 2025 ásamt fylgigögnum. Aðgerðaráætlun um trjáfellingar í Öskjuhlíð í þágu flugöryggis samþykkt og vísað áfram til staðfestingar borgarráðs. Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: Við föllumst á áætlun um fellingu trjáa í Öskjuhlíð vegna flugöryggis sem kynnt var á fundinum. Við gagnrýnum um leið málsmeðferð ISAVIA og Samgöngustofu. Óskýrleiki hefur því miður einkennt ferlið sem hefur gert borginni erfitt fyrir. Sem dæmi má nefna að minnisblað ISAVIA frá því september 2024 barst ekki borginni fyrr en í janúar 2025. Við teljum fulla ástæðu til að árétta að skógurinn í Öskjuhlíðinni er mikilvægt upplifunar- og útivistarsvæði fyrir borgarbúa. Við munum gæta þeirra hagsmuna áfram en ekki síður flugöryggisins. Verkferlar sem varða öryggi flugvallarins þurfa að vera skýrir hvað varðar alla aðila málsins. Við teljum enn fremur að eðlilegast sé að ríkið standi straum af kostnaði trjáfellingarinnar. Hún er ekki í þágu borgarbúa.