Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Skógarvegar 6-8, húsfélags, dags. 3. maí 2023, ásamt bréfi Ólafs Jónssonar f.h. Húsfélagsins, dags. 2. apríl 2023, um að Reykjavíkurborg úthluti lóðinni nr. 6-8 við Skógarveg lóð í borgarlandi/15 bílastæði sem staðsett er fyrir framan lóðina. Ef ekki er hægt að verða við því er óskað eftir því að borgin feli húsfélaginu lóðina í fóstur eða til afnota og geri húsfélaginu kleyft að merkja stæðin eða að borgin endurskoði merkingar og fyrirkomulag bílastæða við Skógarveg þannig að ekki verði heimilt að sérmerkja stæði við götuna. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.