Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. maí 2023 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 18. apríl 2023, þar sem tilkynnt er að stofnunin getur ekki tekið afstöðu til efnis deiliskipulagsb
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 914
11. maí, 2023
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. maí 2023 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 18. apríl 2023, þar sem tilkynnt er að stofnunin getur ekki tekið afstöðu til efnis deiliskipulagsbreytingarinnar þar sem eftirfarandi upplýsingar/umsagnir vantar: Skýra þarf betur samræmi við ákvæði aðalskipulags sbr. töflu 6.1., gera þarf betur grein fyrir áhrifum þess að rífa þann byggingarmassa sem er á svæðinu, setja þarf fram upplýsingar um heildarfjölda íbúa á reitnum öllum, setja þarf fram upplýsingar um stærð breytingarsvæðis, í greinargerð þarf að leggja mat á umhverfisáhrif breytingarinnar sbr. grein 5.4 í skipulagsreglugerð og afla þarf umsagna Minjastofnunar Íslands og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt teikningasetti, dags. 13. júní 2022, síðast br. 11. maí 2023 og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. maí 2023. Lagt fram. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Kirkjusandur 2