Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 914
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 8. maí 2023, um endunýjun á framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar að Hlíðarenda þar sem m.a. stendur til að klára frágang Fálkahlíðar frá Nauthólsvegi langleiðina að Smyrilshlíð, Nauthólsveg að norðanverðu milli Fálkahlíðar og Arnarhlíðar ásamt Arnarhlíð milli authólsvegar og Smyrilshlíðar. Samhliða þessu þarf að tengja lagnir veitna að Haukahlíð 2 en sú lóð er komin í uppbyggingu. Á næsta ári er gert ráð fyrir að klára gönguleiðina með Flugvallarvegi að norðan milli Arnarhlíðar og Hlíðarenda ásamt frágangi borgarlands samhliða uppbygginu við Haukahlíð. Óskað er eftir endurnýjun á leyfi til næstu fjögurra ára. Vísað til umsagnar verkefnastjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr.1051/2022.
102 Reykjavík
Landnúmer: 223517 → skrá.is
Hnitnúmer: 10115323
Deiliskipulag
Hlíðarendi, íþróttasvæði Vals
Samþykkt 15.07.2003 · Deiliskipulag. Nýtt DSK