Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags Elliðaárvogs-Ártúnshöfða - svæðis 7 (Bíldshöfða/Breiðhöfða) á hluta miðsvæðis M4a og á opnu svæði OP30 skv. Aðalskipul
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 914
11. maí, 2023
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags Elliðaárvogs-Ártúnshöfða - svæðis 7 (Bíldshöfða/Breiðhöfða) á hluta miðsvæðis M4a og á opnu svæði OP30 skv. Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040. Rammaskipulag Elliðaárvogs-Ártúnshöfða var staðfest árið 2017 og í framhaldi hefur verið unnið að deiliskipulagi minni áfanga á svæðinu. Skipulagssvæðið afmarkast af Bíldshöfða til suðurs, stoðvegg til norðurs (deiliskipulagsmörkum áfanga 1 og 2 skv. rammaskipulagi), Breiðhöfða til austurs og Þórðarhöfða til vesturs. Gert er ráð fyrir blandaðri byggð þar sem stærstur hluti verður íbúðarhúsnæði. Einnig er gert ráð fyrir atvinnuhúsnæði, sérstaklega á götuhæðum við Bíldshöfða og Breiðhöfða. Byggingarmagn og hæðir húsa munu ráðast við gerð deiliskipulags m.t.t. markmiða aðalskipulags um sjálfbæra þróun og gæði byggðar sbr. skipulagslýsingu Nordic dags 25. janúar 2023. Einnig er lögð fram fornleyfaskrá BorgarsögusafnsReykjavikur, skýrsla 2012. Lýsingin var kynnt frá 21. mars 2023 til og með 18. apríl 2023. Eftirtaldir sendu ábendingar/athugasemdir/umsögn: Jón Þorvaldsson og Steinunn Þorvaldsdóttir, dags. 10. febrúar 2023, Minjastofnun Íslands, dags. 11. apríl 2023, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, dags. 12. apríl 2023, Veitur, dags. 18. apríl 2023, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, dags. 18. apríl 2023, Vegagerðin, dags. 27. apríl 2023 og Skipulagsstofnun, dags. 27. apríl 2023. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 4. maí 2023 og er nú lagt fram að nýju. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.