Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. mars 2023 var lögð fram umsókn Byggingarfélag Gylfa/Gunnars hf., dags. 7. mars 2023, vegna breytinga á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, Halla vegna lóðarinnar nr. 33 við Lambhagaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst aukning á hámarks byggingarmagni neðanjarðar, samkvæmt uppdr. Archus arkitekta, dags. 13. desember 2022. Einnig eru lagðir fram uppdr. vegna lóðarhönnunar, dags. í nóvember og desember 2021 og í mars 2023. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.