Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Reynis Kristinssonar, dags. 26. apríl 2023, ásamt greinargerð, ódags., um annars vegar að koma fyrir gestahúsi austan við núverandi íbúðarhús að Kjalarnesi, Völlum og hins vegar að koma fyrir smábýli tengt skógræktarsvæði vinstra megin við núverandi heimreið að Kjalarnesi, Völlum 2. Einnig eru lagðar fram yfirlitsmyndir, ódags., sem sýna fyrirhugaðar staðsetningar. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.