Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. apríl 2023 var lögð fram umsókn Axels Benediktssonar, dags. 29. mars 2023, um breytingu á deiliskipulagi Sundanna, reita 1.3 og 1.4, vegna lóðarinnar nr. 30 við Hjallaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur er stækkaður til austurs fyrir viðbyggingu, samkvæmt uppdr. Axels Benediktssonar, dags. 29. mars 2023. Umsækjandi var beðinn um að hafa samband við embætti skipulagsfulltrúa, og er nú lagt fram að nýju. Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Hjallavegi 28 og 30 og Ásvegi 10 og 11. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.