Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. maí 2023 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. maí 2023 þar sem sótt er um leyfi til þess að fjarlægja stórt tré við lóðarmörk, stækka garðskála og koma fyrir kaminu við suðvesturútvegg garðskála, mhl. 03, á lóð nr. 46 við Freyjugötu, samkvæmt uppdr. ASK arkitekta ehf., dags. 30. mars 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra. Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsóknfyrir hagsmunaaðilum að Freyjugötu 44 og Barónsstíg 78. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.