Fyrirspurn
Haukahlíð 6 - ósk um breytingu á skilmálum deiliskipulags Hlíðarenda, reits I - SN220768 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. desember 2022 var lagt fram bréf Björns Traustasonar f.h. Bjargs íbúðarfélags dags. 10. nóvember 2022 um breytingu á skilmálum deiliskipulags fyrir Hlíðarenda, reit I sem felst í fjölgun íbúða ásamt fjölgun bílastæða í kjallara sem því hlutfalli nemur, einfalda skipulagsskilmála er snýr að salarhæð og uppbroti húsa og heimila sölu allt að 20% íbúða. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. janúar 2023.. SN220768 Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. janúar 2023, samþykkt. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Haukahlíð 6