Brautarholt 32 - breyting á deiliskipulagi - SN210558 Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kristins Ragnarssonar dags. 3. ágúst 2021 um breytingu á deiliskipulagi Skipholtsreits vegna lóð
Brautarholt 32
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 900
19. janúar, 2023
Annað
Fyrirspurn
Brautarholt 32 - breyting á deiliskipulagi - SN210558 Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kristins Ragnarssonar dags. 3. ágúst 2021 um breytingu á deiliskipulagi Skipholtsreits vegna lóðarinnar nr. 32 við Brautarholt. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á lóðamörkum, hækkun á vegghæð að Brautarholti, hækkun á nýtingarhlutfall vegna minni lóðar og B-rýma ásamt því að gert er ráð fyrir bílakjallara og að skilmálar um bílastæði verði endurskoðaðir, samkvæmt deiliskipulagsuppdr. KRark dags. 21. september 2022. Tillagan var auglýst frá 30. nóvember 2022 til og með 13. janúar 2023. Eftirtaldir sendu ábendingar: Veitur, dags. 6. janúar 2023. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
105 Reykjavík
Landnúmer: 195759 → skrá.is
Hnitnúmer: 10114063