Fyrirspurn
Lögð fram umsókn s. ap arkitekta ehf. dags. 20. október 2022, um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðarinnar nr. 39 við Fiskislóð. Í breytingunni sem lögð er til felst að nýtingarhlutfall er hækkað svo hægt sé að koma fyrir millilofti yfir núverandi lagerrými. Við breytinguna eykst byggingarmagn lóðar, samkvæmt uppdr. s. ap arkitekta dags. 17. október 2022. Vísað til meðferðar verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1051/2022.