Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. desember 2022 var lögð fram fyrirspurn Jóns Þórs Þorvaldssonar, dags. 6. desember 2022, um stækkun hússins á lóð nr. 39 við Seiðakvísl sem felst í að koma fyrir glerskála út frá stofu ásamt því að stækka bílskúr til norðurs, samkvæmt uppdr. Úti og Inni arkitekta dags. 28. nóvember 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. janúar 2023. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. janúar samþykkt, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögninni. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Seiðakvísl 39