Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. nóvember 2022 var lögð fram fyrirspurn Hannesar Jónasar Jónssonar, dags. 4. nóvember 2022, um að breyta skráningu á íbúðarhúsnæði í atvinnuhúsnæði í kjallara á lóð nr. 10 við Lautarveg. Einnig lagt fram bréf umsækjanda dags. 4. nóvember 2022 og skissa ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2022. Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2022.