Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. júní 2021 var lögð fram umsókn Vigfúsar Halldórssonar dags. 31. maí 2021 ásamt greinargerð Stefáns Auðuns Stefánssonar dags. 7 janúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigagerðisreits vegna lóðarinnar nr. 4 við Breiðagerði. Í breytingunni felst að í stað hangandi stálsvala utan á kvistvegg komi verönd sem hvílir á burðavirkjum þaks yfir stofu, samkvæmt uppdr. Vigfúsar Halldórssonar dags. 27. maí 2021, br. dags. 13. desember 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Breiðagerði 2 og 6 og Bakkagerði 1, 3 og 5.