Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. desember 2022 var lögð fram umsókn Úlfarsá ehf., dags. 17. nóvember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna reits E. Í breytingunni sem lö
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 897
15. desember, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. desember 2022 var lögð fram umsókn Úlfarsá ehf., dags. 17. nóvember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna reits E. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmarkaður er nýr byggingarreitur fyrir djúpgáma á lóð ásamt því að afmarkaður er reitur merktur þjónustusvæði fyrir verslun austan við móttöku, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Traðar dags. 16. nóvember 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.