Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. október 2022 var lögð fram umsókn Vínlandsleiðar ehf. dags. 12. september 2022 um breytingu á deiliskipulagi Grafarholts, athafnasvæðis vegna lóðarinnar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 897
15. desember, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. október 2022 var lögð fram umsókn Vínlandsleiðar ehf. dags. 12. september 2022 um breytingu á deiliskipulagi Grafarholts, athafnasvæðis vegna lóðarinnar nr. 12-14 við Vínlandsleið. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmarkaður er reitur fyrir reiðhjólaskýli á núverandi bílastæði á sunnanverðri lóðinni, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta dags. 12. september 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Samþykkt með vísan til heimilda umembættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.