Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 9. desember 2022, þar sem ekki er gerð athugasemd við birtingu auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þegar brugðist hefur við eftirfarandi: Í skipulagsgögnum þa
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 897
15. desember, 2022
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 9. desember 2022, þar sem ekki er gerð athugasemd við birtingu auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þegar brugðist hefur við eftirfarandi: Í skipulagsgögnum þarf að setja fram fjölda íbúða á svæðinu sbr. kafla 3.5.1 í aðalskipulagi. Í breytingunni segir að svæði fyrir íbúðarbyggð (B) verður stækkað (og svæði A minnkað) og muni ná yfir það svæði  sem deiliskipulagsbreytingin nái yfir. Skilmálar (B) munu því eiga við um svæðið en ekki skilmálar fyrir "miðsvæði" - blönduð byggð eins og í gildandi deiliskipulagi. Í gildandi deiliskipulagi Gufunes, áfanga 1 segir að svæði (B) sé grænt íbúðarsvæði við sjó sem rúmar 250-300 íbúðir. Auk þess bendir stofnunin á að í greinargerð skipulagsfulltrúa er vísað til rammaskipulags sem verið sé að vinna fyrir 2. áfanga í Gufunesi. Stofnunin telur ástæðu til að benda á að rammaskipulag er stefna fyrir hverfi eða bæjarhluta en hefur ekki lögformlegt gildi. Vísað til meðferðar verkefnisstjóra.