Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. desember 2022 var lögð fram fyrirspurn Gísla Magnússonar, dags. 1. nóvember 2022, um að færa innkeyrslu að lóð nr. 44A við Vesturgötu frá Vesturgötu að Nýlendugötu. Einnig er lögð fram loftmynd ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2022. Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2022.