Fyrirspurn
Lögð fram að nýju svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sem lögð var fram á fundi skipulags- og samgönguráðs 4. maí sl.:
Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvernig gangi með hljóðmön við Blesugróf? Það er búið að vera á dagskrá frá 2014 og varðar lýðheilsu þessa hverfis. Vísað er í fyrirspurn frá 2020 um fyrirhugaða hljóðmön við Reykjanesbraut. Hvernig er staðan í þeim málum en talsverður hávaði er í hverfinu vegna umferðar á Reykjanesbraut og Stekkjarbakka. (sjá Aðgerðaáætlun gegn hávaða, frá Vegagerðinni og Reykjavíkurborg frá janúar 2014). Árið 2021 bókaði Flokkur fólksins við svari við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins, um mön við Reykjanesbraut/Blesugróf eftirfarandi: Fulltrúi Flokks fólksins spurði fyrir íbúa eftir upplýsingum um fyrirhugaða mön við Reykjanesbraut/Blesugróf og þá hvernig mál standa. Íbúum fannst þeir ekki hafa náð til skipulagsyfirvalda. Í svari segir að forhönnun á umræddri hljóðmön sé nú lokið og kostnaðaráætlun vegna framkvæmda liggi fyrir en ekki liggi fyrir hvenær hægt verði að ráðast í framkvæmdir. Mörgu er því enn ósvarað svo sem hvenær hægt verður að ráðast í framkvæmdir og hver sé ábyrgur fyrir því að koma verkinu af stað. Flokkur fólksins spyr hvað sé að frétta af þessu og af hverju hefur þetta tekið allan þennan tíma?
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar.