Fyrirspurn
Lögð fram að nýju svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sem lögð var fram á fundi skipulags- og samgönguráðs 4. maí sl.:
Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að bekkjum verði fjölgað í miðbænum og á öðrum stöðum í borginni eftir atvikum fyrir fólk til að setja á. Skoða mætti ýmist trébekki eða steinbekki, einhverja sem eru fyrirferðarlitlir og smekklegir. Svona bekkir þurfa ekki að kosta mikið og ekki er um að ræða mikinn viðhaldskostnað. Best væri að hafa steinbekki sem ekki er hægt færa úr stað og einnig eru tiltölulega viðhaldsfríir. Þetta er hagsmunamál fyrir borgara á öllum aldri sem eru á ferð um borgina að geta tyllt sér á bekk um stund til að njóta stundarinnar. Þetta er í raun ákveðið ákveðið lýðheilsumál sem hefur beint að gera með lífsgæði. Víða mætti einnig koma fyrir litlum "áningar reitum" þar sem fólk getur sest niður og slakað á sjálft eða með öðrum. Allskonar útfærslur gætu verið í boði og einnig mætti efna til samkeppni um góðar tillögur sem taka á þessum málum.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða.