Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokks, vegna framkvæmda við Bústaðaveg, umsögn Mál nr. US190355 Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 22. apríl 2022. Áheyrnar
Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins semlögð var fram á fundi skipulags- og samgönguráðs 6. apríl sl.: Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að farið verði í viðgerð á göngustíg sem liggur í gegnum Fellin frá Rjúpufelli að Yrsufelli. Fulltrúi Flokks fólksins hefur fengið ábendingar um að þarna þarf viðhald og almenna hreinsun. Reynt hefur verið að vekja athygli borgarinnar á þessu en ekki tekist. Um er að ræða stíg sem liggur í gegnum eitt þéttbyggðasta svæði í Reykjavík. Það nota mjög margir þennan göngustíg og þarfnast hann viðgerðar og hreinsunar þegar sú tíðin er. Oft hefur verið glerbrot á stígnum, rusl og lauf á haustin. Líklegt þykir að þessi stígur hafi hreinlega gleymst hjá borginni því enginn kemur og sópar hann hvað þá lagfærir hann. Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu reksturs- og umhirðu.