Fulltrúi Flokks fólksins spurði um aðstæður hjólandi vegfarenda í Úlfarsárdal þar sem eru tröppur á göngustígum. Þarna fer fólk einnig um með barnakerrur. Víða eru tröppur og hafa börn sem hjóla í skólann þurft að bera hjól sín upp og niður tröppurnar. Auk þess sem hjólastígar eru víða með krappar beygjur. Fulltrúi Flokks fólksins kallaði eftir endurskoðun á þessu en fékk þau viðbrögð að þetta væri í lagi við Urðarbrunn. Gerð var önnur tilraun til að ná til skipulagsyfirvalda með því að senda mynd að börnum sem reyna að redda sér með því að hjóla á grasbakka með fram göngustígum. Í svari segir að svona verði þetta bara að vera þar sem lagning stígs samhliða tröppum í miklum halla tryggir ekki nægt öryggi vegfarenda um stíginn. Segir að aðrar leiðir séu færar um hverfið þar sem minni halli er til staðar. Gott og vel en það er alþekkt að flestir vilja fara sem stysta leið frá einum stað til annars. Vanda þarf til þeirra leiða, svo sem að hafa tröppur þannig að hægt sé að fara um þær með margs konar kerrur og hjól. Með vettvangsskoðun má sjá hvað bjátar á.