Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins vegna lóða og byggingarrétta
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 131
9. mars, 2022
Annað
Fyrirspurn
Fram hefur komið frá  umhverfis- og skipulagssviði að skoða eigi enn frekar með opnum huga mögulegar lausnir til að koma til móts við umkvartanir hagsmunaaðila. Gera á athuganir með hönnuðum verksins og utanaðkomandi ráðgjöfum. Eftir það á að boða hagaðilum til  fundar og kynna niðurstöðuna. Þessi svör og viðbrögð eru einfaldlega ekki nógu góð að mati fulltrúa Flokks fólksins. Spurt er hvort það standi fyrir dyrum að Sviðið  gera athuganir á sjálfu sér? Einnig er spurt hvar samráð er statt í öllu þessu máli  eins og einmitt hefur verið tiltekið að eigi að hafa í umsögn fyrir framkvæmdaleyfi frá Umhverfis- og skipulagssviði? Hingað til hefur ekkert samráð átt sér stað vegna aðkomu að húsunum og öðrum þáttum sem hefði þurft að hafa samráð um, í tæp 3 ár. Það svar sem hefur verið gefið er allt of loðið og óljóst. Heldur hefur ekki verið gefinn upp neinn tímafrestur á  t.d. þessari "athugun"
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs.