Fyrirspurnir áheyrnarfulltrúa Miðflokksins, vegna lóða og byggingarrétta, umsögn         Mál nr. US220033 Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 25. febrúar 2022. Áhey
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 131
9. mars, 2022
Annað
Fyrirspurn
Þann 21.02.2022 fengu allir borgarfulltrúar og fleiri bréf frá starfsmönnum vetrarþjónustu sem lýsa mikilli óánægju og vanlíðan. Segir í texta með bréfinu að "bréf þetta fjallar um það sem við teljum vera þekkingarleysi, ófullnægjandi aðbúnað, óboðlegt vaktafyrirkomulag og mismunun í garð starfsfólks sem sér um vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar". "Í öðru lagi fjallar það um skoðanakúgun, forsjárhyggja, einelti, þöggun og mismunun sem við teljum að viðgangist innan borgarkerfisins. Mikið af gögnum og vitnisburðum liggur fyrir varðandi þessi mál sem setja má fram síðar." Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum og skýringum á hvað veldur þessari miklu óánægju sem hér er lýst. Óvenjulegt er  að fá bréf sem þetta frá öllum starfsmönnum í einni af deildum borgarinnar. Ætla að mikið þurfi til til að viðkomandi telji sig knúinn til að ákalls sem þetta. Má rekja þetta kannski til yfirstjórnar? Bréf verkstjórans lýsir grafalvarlegri stöðu.  Fulltrúi Flokks fólksins spyr, hvað á að gera, hvernig á að bregðast við. Við þetta er ekki hægt að una? Því fer Flokkur fólksins fram á það að fá upplýsingar um það úrbótaferli sem átti að vera í gangi og hvað mun verða gert nú þegar þessar ábendingar hafa borist.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu reksturs og umhirðu.