Vitastígur 9 og 9A, breyting á skilmálum deiliskipulags     (01.174.0)    Mál nr. SN210809 Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 3. mars 2022 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að bre
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 131
9. mars, 2022
Annað
Fyrirspurn
Lagt er til að í fundargerðum skipulagsfulltrúa komi skýrt fram afgreiðsla erinda með því að láta umsögn skipulagsstjóra fylgja fundargerð og/eða draga saman niðurstöðu umsagnar inn í fundargerð.Tillögunni fylgir greinargerð.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Tillaga sem  hér er lögð fram og framvísað er um að í fundargerðum skipulagsfulltrúa komi skýrt fram afgreiðsla erinda með því að láta umsögn skipulagsstjóra fylgja fundargerð og/eða draga saman niðurstöðu umsagnar inn í fundargerð. Fulltrúa Flokks fólksins finnst þetta þörf tillaga enda gefa fundargerðir oft allt of litlar upplýsingar um hvað fór fram á fundunum.