Nýr Landspítali við Hringbraut, breyting á deiliskipulagi     (01.19)    Mál nr. SN210771 Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 3. mars 2022 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á breytingu á dei
Skógarhlíð 16
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 131
9. mars, 2022
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 25. febrúar 2022.
Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Reykjavíkurborg undir stjórn Dags B. Eggertssonar hefur gefið olíufélögunum og fleiri aðilum lóðir og þar með byggingarétt á besta stað í borginni. Þar með er hann þátttakandi í að umbreyta félögunum í fjárfestingar- og fasteignafélög. Það eitt og sér er forkastanlegt. Varðandi Minjavernd á þeim lóðum sem um er spurt koma ekki allar upplýsingar fram miðað við ábendingar sem hafa borist. Minjavernd hefur einnig haft afskipti af byggingum í Skógarhlíð 16 og þar að auki lóð á Laugavegi 120 þar sem Næturvaktin var tekin upp sem er í framtíðarsamningum bensínstöðvardílsins og ekki er spurt um. Á svarinu er ljóst að N1 ræður skipulagsvinnu Reykjavíkur því ráðgjafi á þeirra vegum hélt yfirlitskynningu fyrir verkefnastjóra á skrifstofu skipulagsfulltrúa Reykjavíkur. Reykjavíkurborg hefur gefið frá sér skipulagsvaldið til þriðja aðila á flestum uppbyggingarreitum í borginni. Það er ekki heimilt samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Í svarinu felst að ekkert lá á að gera samninga við olíufélögin og ekki liggur fyrir áætlun hvenær deiliskipulagsgerð ofangreindra lóða lýkur. Í þessum málum hefði átt að flýta sér hægt og forðast samningsmistök eins og nú blasir við að voru gerð. Þessi mistök munu  kunna að leiða til þess að núverandi lóðarhafar hagnist verulega á breyttri lóðanotkun, hagnaður sem hefði ella ratað beint í borgarsjóð.