Sæbraut og Miklabraut í stokk, tillögur til frekari úrvinnslu         Mál nr. SN220059 Lögð fram samantekt Alta ráðgjafastofu dags. 31. janúar 2022 um val á tillögum til frekari úrvinnslu í hugmyndale
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 127
2. febrúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar, dags. 31. janúar 2022:
Skrifstofa samgöngustjóra og borgarhönnunar leggur til að skipulags- og samgönguráð samþykki að veita heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna borgargatnanna Rofabæjar og Bæjarbrautar.
Samþykkt. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.
Skipulags- og samgönguráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Skipulags- og samgönguráð leggur til að tillögurnar verði kynntar í íbúaráði Árbæjar og Norðlingaholts.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Flokkur fólksins styður að venjulegar götur verði gerðar að borgargötum ef það er gert í fullu samráði við íbúa við göturnar og nærliggjandi götur. Að gera götu að borgargötu má ekki þrengja að eða hefta aðgengi fólks að heimilum sínum eða gera gestum aðgengi erfitt. Séu aðstæður góðar fyrir borgargötu þá eru þær vissulega aðlaðandi og geta stuðlað að góðri hverfismenningu. Í gögnum er að finna mörg atriði sem eru til bóta. Fulltrúi Flokks fólksins rekur aftur augun í skrif um „blágrænar lausnir“. Ekki er fallist á að blágrænar lausnir eigi við þarna enda þó það sé í tísku núna að setja það í flestar kynningar. Í gögnum segir: ,, Blágrænar lausnir og gróður: Gegndræpi aukið og svæði verður grænna”. Er það líklegt? Fulltrúi Flokks fólksins spyr nú bara hvort skipulagsyfirvöldum finnst að vanti úrkomu í Árbænum í þeim mæli að gróður visni?
Eva Þrastardóttir frá Eflu og Bjarni Rúnar Ingvarsson ráðgjafaverkfræðingur taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
(C)    Ýmis mál