Sæbraut í stokk, hugmyndaleit, kynning         Mál nr. SN210529 Lögð fram til kynningar tillaga Arkís arkitekta, Landslags og Mannvits úr hugmyndaleit um uppbyggingu í og við vegstokk á Sæbraut til mó
Síðast Frestað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 127
2. febrúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram ársskýrsla byggingarfulltrúa fyrir árið 2021, dags. í janúar 2022.
Kynnt.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Þessi samantekt staðfestir þann vanda sem borgin glímir við í húsnæðismálum. Um 61% byggingarleyfisumsókna er frestað vegna athugasemda og eða ófullnægjandi gagna. Af þessu má sjá og skilja pirring margra umsækjenda sem kvarta yfir að ferlið allt taki óheyrilegan tíma ef eitthvað þarf að bæta í gögn eða laga. Búið er að samþykkja 223 þúsund fermetra og 805 þúsund rúmmetra fyrir allt húsnæði. Af 1285 íbúðum samþykktum eru 95% í fjölbýli. Megnið er sem sagt fjölbýli og af þeim 1065 nýjum íbúðum er 93% í fjölbýli. Þörf er á þrefalt fleiri íbúðum nú strax. Í skýrslu HMS 2021 segir að fjölgun íbúða á síðasta ári nemi rúmlega þrjú þúsund íbúðum á landsvísu, sem er sambærileg fjölgun og á árinu 2019. Samtök Iðnaðarins bendir á að samdráttur er framundan og líkur á uppsafnaðri íbúðaþörf. Samkvæmt talningunni nú í haust mældist um 18% samdráttur á fjölda íbúða í byggingu og 41% samdráttur í fjölda íbúða á fyrstu byggingarstigum. Það vantar almennt meira framboð af nýjum íbúðum og þess vegna hefur verðbólgan rokið upp. Verðhækkanir eru m.a. tilkomnar vegna framboðsskorts. Húsnæðisvandinn er heimagerður vandi. Færri íbúðir eru að koma inn á markað nú en sl. tvö ár.
Nikulás Úlfar Másson byggingarfulltrúi tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
(E) Samgöngumál