Reykjavíkurvegur 31, skipting lóðar     (01.635.5)    Mál nr. SN210827 Lögð fram umsókn Arons Inga Óskarssonar dags. 18. mars 2021 um skiptingu lóðarinnar Reykjavíkurvegur 31 í tvær lóðir nr. 31 og 31
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 126
26. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Reykjavíkurvegur 31, skipting lóðar     (01.635.5)    Mál nr. SN210827 Lögð fram umsókn Arons Inga Óskarssonar dags. 18. mars 2021 um skiptingu lóðarinnar Reykjavíkurvegur 31 í tvær lóðir nr. 31 og 31B. Einnig er lagt fram bréf Landupplýsingadeildar dags. 20. janúar 2022 ásamt breytingablaði umhverfis- og skipulagssviðs dags. 20. janúar 2022, lóðauppdrætti dags. 20. janúar 2022, afsalsbréfi dags. 24. október 1964 og skiptasamningi dags. 8. júní 1989. Þar sem málið varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda er lagt til að fallið verði frá kynningu þess með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. viðauka 1.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs. Ingvar Jón Bates Gíslason verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. Fylgigögn Reykjavíkurvegur 31