KR svæðið - Frostaskjól 2-6, nýtt deiliskipulag     (01.516.9)    Mál nr. SN210824 Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir KR svæðið. Í tillögunni felast markmið um
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 126
26. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
KR svæðið - Frostaskjól 2-6, nýtt deiliskipulag     (01.516.9)    Mál nr. SN210824 Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir KR svæðið. Í tillögunni felast markmið um að bæta aðstöðu KR til íþrótta og félagsstarfsemi með byggingu íþrótta og þjónustubygginga. Auk þess eru áform um að auka fjölbreytni svæðisins með byggingu íbúða á jöðrum lóðarinnar í samræmi við markmið aðalskipulagsins samkvæmt uppdráttum ASK Arkitekta ehf. og Bj. Snæ slf. dags. 5. janúar 2022. Einnig er lagt fram minnisblað Alta dags. 28. desember 2018, drög að húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur ódags. og Samgöngumat Eflu dags. 5. nóvember 2021. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs. Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun: Hér er verið að leggja til þéttingu byggðar á KR-svæðinu. Aðalvelli félagsins er snúið um 90 gráður og við það skapast tækifæri til byggja upp íbúðir og þjónustu á jarðhæð meðfram Flyðrugranda og Kaplaskjólsvegi. Öll viðmið um bílastæði eru í samræmi við bílastæðastefnu borgarinnar. Jafnframt er gert ráð fyrir nýju fjölnota íþróttahúsi á miðju svæðinu, sem er í takt við forgangsröðun ÍTR og ÍBR um uppbyggingu íþróttamannvirkja. Við fögnum þessum hugmyndum sem nú fara í formlegt umsagnarferli. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Það er fagnaðarefni að nú séu loks komnar fram hugmyndir um uppbyggingu á KR svæðinu og þær fái þá kynningu hjá íbúum. Það er mikilvægt að innviðir séu tryggðir samhliða fjölgun íbúða, enda er skortur á leikskólarýmum í vesturbænum og skólar aðþrengdir. Þá er nauðsynlegt að næg bílastæði séu til staðar fyrir íbúa og gesti. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: Nú stendur til að girða KR völlinn af með íbúðabyggð. Innviðir Vesturbæjarins þola ekki þá uppbyggingu. Fyrirhugað byggingamagn