Ránargata 4A
Ránargata 4A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1190
29. nóvember, 2022
Annað
Fyrirspurn
Jónas Pétur Ólason, Mánabraut 5, 200 Kópavogur Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi hótels í flokki IV, teg. a, hótel, 29 gistiherbergi eftir breytingu fyrir 62 gesti, þ.e. innra skipulagi allra hæða, fækkað um eitt gistiherbergi á 4. hæð, bætt starfsmannaaðstaða, fjölgað snyrtingum, bætt við líkamsræktarherbergi, breytingar gerðar á brunatæknilegum atriðum og svalahandrið þaksvala hækkað á húsi á lóð nr. 4A við Ránargötu. Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á útgefnum aðaluppdráttum erindis BN054297. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. nóvember 2022 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 21. nóvember 2022.
Svar

Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlitið.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100517 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025100