Fyrirspurn
600794-2059 Dalsnes ehf., Korngörðum 3, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. hæð að hluta í rými 01-0101, þ.e. bætt
við handlaugum, þvottaaðstöðu, loftræsingu, reistir milliveggir, bætt við ræstingu og
geymslu og í rými 01-0102 er bætt við gólfniðurföllum, stútum, milliveggir fjarlægðir,
bætt við eldhúsvöskum, þvottaherbergi og snyrtingu í húsi á lóð nr. 2 við Bæjarflöt.
Erindi fylgir afrit af aðaluppdrætti afstöðumyndar, byggingar- og brunavarnarlýsingu
erindis BN044312.