Fyrirspurn
Jóhann Almar Einarsson, Depluhólar 4, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta útliti á húsi og skipulagi lóðar, þ.e. tröppur upp á svalir
felldar út, gluggar síkkaðir og komið fyrir hurð í stað glugga á suðausturhlið, gluggar
síkkaðir og komið fyrir hurð á suðvesturhlið, lóð lækkuð neðan við botnplötu, bætt
aðgengi og umferðarleiðir innan lóðar og að húsi, steypt setlaug og stoðveggir á
lóðarmörkum húss á lóð nr. 4 við Depluhóla.
Erindi fylgir umboð eiganda dags. 6. október 2022, bréf eiganda, rökstuðningur vegna
breytinga dags. 11. október 2022, samþykki aðliggjandi lóðarhafa nr. 2 við Depluhóla og
nr. 1 við Erluhóla.
Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á afriti aðaluppdrátta sem samþykktir voru þann 12.
júlí 1984.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 20. október 2022 fylgir
erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 20. október 2022. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2022.