Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
34. Jöfursbás 9B (02.22) 232196 Mál nr. BN061139
490519-2460 Hverfið Gufunes ehf., Skipholti 50d, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús með 24 íbúðum á fjórum hæðum með einu
stigahúsi ásamt kjallara undir hluta húss á lóð nr. 9B við Jöfursbás.Útskrift úr gerðabók
embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2022 fylgir erindi, ásamt bréfi
skipulagsfulltrúa dags. 11. júlí 2022.Stærð: 1.947,8 ferm., 5.942,0 rúmm.
Erindi fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 11. júlí 2022, yfirlit breytinga unnið á afrit
teikninga hönnuðar dags. 5. ágúst 2022, afrit umsóknar um snjóbræðslu undir gangstétt
í borgarlandi dags. 18. ágúst 2022, afrit viljayfirlýsingar Zipcar dags. 18. ágúst 2022 og
bréf hönnuðar vegna athugasemda dags. 18. ágúst 2022.
Erindi fylgir umsögn skrifstofu umhverfisgæða vegna djúpgáma í formi tölvupósts dags.
31. ágúst 2022.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 11. október 2022 og afrit tölvupósts vegna afnotaleyfi
f. snjóbræðslu í borgarlandi dags. 8. september 2022.
Erindi fylgir umsögn skrifstofu umhverfisgæða dags. 20. október 2022.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með
vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í
samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa. Aðkoma að 9c verður til umfjöllunar þegar umsókn um
byggingarleyfi berst.