Stefnisvogur 12
Stefnisvogur 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1185
25. október, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
580521-2150 BBL 159 ehf., Laugavegi 7, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja þrjú stakstæð tveggja til fimm hæða fjölbýlishús með 68 íbúðum sem tengjast um bílakjallara fyrir 63 bíla á lóð nr. 12 við Stefnisvog. Erindi fylgir breyting á aðalskipulagi Vogabyggðar dags. í júní 2016, greinargerð um hljóðvist frá Mannvit dags. 5. september 2022, minnisblað um hljóðmælingar við Gelgjutanga frá Eflu dags. 21. apríl 2015 og greinargerð um hljóðvist frá Mannvit dags. 5. september 2022. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. október 2022 ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 11. október 2022. Stærð, A-rými: 9.590,4 ferm., 29.710,7rúmm. B-rými: 309,2 ferm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með
vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í
samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 227884 → skrá.is
Hnitnúmer: 10129224