Hvammsgerði 14
Hvammsgerði 14
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1188
15. nóvember, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Hrefna Indriðadóttir, Hvammsgerði 14, 108 Reykjavík Jose Antonio de Bustos Martin, Hvammsgerði 14, 108 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja stakstæða vinnustofu í stað bílgeymslu, vinnustofa mhl. 02, verður úr steinsteypt, með breyttu þakformi og ögn stærri í umfangi, staðsett í norðurhorni lóðar við hús á lóð nr. 14 við Hvammsgerði. Stærð: 27,3 ferm., 87,5 rúmm. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. janúar 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. janúar 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2022. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 9. nóvember 2022 og afrit útgefinna aðaluppdrátta.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107704 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021472