Grensásvegur 14
Grensásvegur 14
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1142
30. nóvember, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
480199-3089 Frikkabílar sf., Grensásvegi 14, 108 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að innrétta veitingahús í flokki l, teg c, skyndibitastað með sæti fyrir 30 gesti og biðrými fyrir 10 gesti í rými 0101 á 1. hæð og koma fyrir loftræstiröri á norðurgafli verslunar- og gistihúss, mhl.01, á lóð nr. 14 við Grensásveg. Erindi fylgir samþykki meðeigenda mhl.01 og mhl.02, uppfærð greinargerð brunahönnuðar dags. 18. nóvember 2021, greinargerð brunahönnuðar dags. 9. nóvember 2021, bréf frá hönnuði dags,. 24. nóvember 2021, bréf frá hönnuði dags. 18.11.2021, greinargerð hönnuðar vegna athugasemda dags. 17. nóvember 2021, og yfirlit breytinga á A3 afriti af aðaluppdráttum stimpluðum 14. júlí 2009.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103852 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011529