Vesturgata 64
Vesturgata 64
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1145
21. desember, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
530614-0420 Hróður ehf., Kjalarvogi 7-15, 104 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja mhl. 02, sem er 7 hæða steinsteypt fjölbýlishús með 44 íbúðum á bílakjallara á lóð nr. 64 við Vesturgötu. Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist frá verkfræðistofunni Mannvit dags. 8. nóvember 2021 og minnisblað um sorphirðu dags. 22. nóvember 2021. Stærð, A-rými: 5.473,9 ferm., 17.516,4 rúmm. B-rými: 236,8 ferm. Samtals: 5.710,7 ferm. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. desember 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 6. desember 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.
112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013,
skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á
fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og
skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á
byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en
þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu
búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna
jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 215389 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022577