Fyrirspurn
Geir Valur Ágústsson, Brekkugata 27, 600 Akureyri
Sótt er um leyfi til að gera bílgeymslu með tilheyrandi innkeyrslu frá götu við suðaustur
lóðarmörk,og að þak bílgeymslu verði hluti af efri verönd lóðar húss á lóð nr. 81 við
Bergstaðastræti.
Stækkun er: 39,8 ferm., 133,8 rúmm.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 14. október 2021, afrit af lóðaruppdrætti dags. 5. maí
2015 og afrit af gildandi aðaluppdráttum samþykktir 27. júní 2006 og 28. nóvember
1974.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. nóvember 2021
fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. nóvember 2021. Einnig fylgir
bréf skipulagsfulltrúa dags. 15. nóvember 2021.