Fyrirspurn
530269-7609 Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að reisa leikskóla - Miðborgaraskóla - mhl. 03 á þremur hæðum á
kjallara með burðarvirki að hluta staðsteypt og að hluta úr krosslímdum
timbureiningum, sem klæddar verða með hvítri álklæðningu, stækka mhl. 01, sem er
gæsluvallarhús og að koma fyrir hjólastæðum út á lóð, á lóð nr. 89 við Njálsgötu.
Erindi fylgir varmatapsrammi, dags. 11. október 2021, hljóðvistarskýrsla, dags.
september 2021 og greinagerð um algilda hönnun, dags. 11. október 2021. og aftur 29.
október 2021.
Stækkun á gæsluhúsi, mhl. 01: 51,8 ferm., 147,9 rúmm.
Stærð nýs leikskóla, mhl. 03: 1.415,1 ferm. 5.670,53 rúmm.
Stærð hjólaskýlis: XX ferm og XX rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. nóvember 2021
fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. nóvember 2021. Einnig fylgir
bréf skipulagsfulltrúa dags. 22. nóvember 2021.