Háaleitisbraut 1
Háaleitisbraut 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1136
19. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
570269-1439 Sjálfstæðisflokkurinn, Pósthólf 5296, 125 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að byggja 4-6 hæða steinsteypt fjölbýlishús, klætt málmklæðningu, með alls 47 íbúðum, atvinnurými á hluta jarðhæðar og bílakjallara, mhl. 02, á lóð nr. 1 við Háaleitisbraut. Stærðir: 7.329.4 ferm., 21.079.7 rúmm. Erindi fylgir mæliblað 1.252.1 endurútgefið 22. febrúar 2010, og lóðablað 1.252.1 dags. 29. júlí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. október 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. október 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Þinglýsa skal lóðablaði vegna lóðarstækkunar til að samþykktin öðlist gildi.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.