Nökkvavogur 4
Nökkvavogur 4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1134
5. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Elín Kristjánsdóttir, Nökkvavogur 4, 104 Reykjavík Gísli Gunnarsson Bachmann, Nökkvavogur 4, 104 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að grafa frá og gera verönd við suðaustur horn kjallaraíbúðar, síkka glugga á austurhlið fyrir hurð, og síkka stofuglugga á suðurhlið íbúðar 0001 í íbúðarhúsi á lóð nr. 4 við Nökkvavog. Stærð: Óbreytt. Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa á teikningu dags. 2. ágúst 2021, umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 12. ágúst 2021, mæliblað 1.441.0 dags. 1. mars 1950 og yfirlit breytinga á aðaluppdrætti samþykktum 2. október 2001.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105408 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024270