Samþykkt.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. september 2021.
42. Sigtún 44 (13.66-.98) 104704 Mál nr. BN059766
570480-0149 Reykjavíkurborg - eignasjóður, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera viðbyggingu á milli tengibyggingar og kúlu í Ásmundarsafni
fyrir pallalyftu, á lóð nr. 44 við Sigtún.
Erindi fylgir tölvupóstur frá Minjastofnun Íslands dags. 24. ágúst 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. september 2021
fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. september 2021. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 13. september 2021.
Stækkun vegna viðbyggingar er: 8,00 ferm., 32,3 rúmm.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.