Ægisíða 102
Ægisíða 102
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1134
5. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
540206-2010 Festi hf., Dalvegi 10-14, 201 Kópavogur Sótt er um leyfi til að rífa niður núverandi skyggni sem er orðið lélegt, sem er á samþykktum teikningum og skráningartöflu af mhl. 01 bensínstöð á lóð nr. 102 við Ægisíðu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. október 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. október 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2021. Niðurrif af B rými er: 254,0 ferm., XX rúmm.
Svar

Samþykkt.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 1. október 2021.
Ýmis mál
86. Bústaðavegur 145A Mál nr. BN059996
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stofna nýja lóð, Bústaðavegur 145A,
í samræmi við meðfylgjandi uppdrátt sem er dagsettur 28.09.2021.
Ný lóð Bústaðavegur 145A (staðgr.1.826.404, L226719).
Lagðir 35 m² til lóðarinnar frá óútvísaða landinu (L221488).
Lóðin Bústaðavegur 145A (staðgr.1.826.404, L226719) verður 35 m².
Sjá deiliskipulagsbreytingu sem var samþykkt í skipulags- og samgönguráði þann
23.01.2019, samþykkt í borgarráði þann 31.01.2019 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda
þann 01.03.2019.
Ath! Þann 12.11.2019 samþykkti byggingarfulltrúi að minnka lóðina Bústaðaveg 151
(L108439). Landið sem nú lendir undir lóðinni Bústaðavegi 145A átti þá að verða hluti
af óútvísaða landinu (L221488). Það er ekki enn búið að þinglýsa þessum gjörningi þ.a.
ennþá er landið, samkv. skrám Þjóðskrár Íslands, hluti af lóðinni Bústaðavegi 151
(L108439).
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106105 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016999