Hátún 6A-6B
Hátún 6A-6B
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1131
14. september, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
690988-1519 Háland ehf, Hátúni 6a, 105 Reykjavík Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum, þar sem kjallari hefur verið stúkaður niður, á 1. hæð hefur verslunareiningum verið fjölgað og á 2. hæð hefur verið innréttað skrifstofurými, sameina mhl. 01 og 02 í mhl. 01 vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar, í húsi á lóð nr. 6 A við Hátún. Erindi fylgir bréf hönnuðar um sameiningu mhl. 01 og 02.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án
byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar.
Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar. Skilyrt er að
eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist
gildi.